Íslandsdeild ICOM var stofnuð árið 1985, með það að markmiði að efla faglegt safnastarf á Íslandi og auka samskipti fagfólks safna hér á landi við starfsfélaga víða um heim. Þáttur í þeirri viðleitni var útgáfa á samþykkta og siðareglna ICOM á íslensku árið 1997 og endurskoðuð útgáfa af siðareglunum frá árinu 2004, sem kom út árið 2006. Íslandsdeild ICOM stóð einnig fyrir útgáfu handbókarinnar Söfn á Íslandi árið 1993. Fyrir ágóða af útgáfu bókarinnar Söfn á Íslandi árið 1993 var stofnaður ferðasjóður sem er í vörslu Íslandsdeildar ICOM. Félögum gefst kostur á að sækja um ferðastyrki sem ætlaðir eru til þátttöku í allsherjarþingi samtakanna sem haldið er þriðja hvert ár. Tvęr alžjóšlegar ICOM rįšstefnur hafa veriš į Ķslandi – ICR įriš 2006 og CECA įriš 2009.

Stjórn Íslandsdeildar ICOM skipa:

Formaður: Ólöf K. Sigurðardóttir olof.sig@hafnarfjordur.is
Ritari: Guðbrandur Benediktsson gudbrandur.benediktsson@reykjavik.is
Gjaldkeri: Dagný Heiðdal dagny@listasafn.is
Varamenn: Inga Jónsdóttir listasafn@listasafnarnesinga.is
  Nathalie Jacqueminet nathalie@thjodminjasafn.is