1.
NAFN OG AÐSETUR
Nafn
félagsins er Íslandsdeild ICOM. Skráð utanáskrift þess
er Pósthólf 1513, 121 Reykjavík.
2.
MARKMIÐ
Markmið Íslandsdeildar
ICOM er að efla samvinnu, gagnkvæma aðstoð og
upplýsingamiðlun meðal félaga
deildarinnar og einkum:
- að vinna
að markmiðum ICOM, kynna þau meðal
safna og sérmenntaðra starfsmanna þeirra á Íslandi
og vinna að framgangi áætlana ICOM
jafnt innanlands sem utan,
- að efla
aðild að ICOM meðal safna og sérmenntaðra
starfsmanna þeirra á Íslandi,
að vera helsti tengiliður milli ICOM og félaga þess á Íslandi,
að gæta hagsmuna ICOM á Íslandi
að koma fram fyrir hönd félaga deildarinnar
gagnvart höfuðstöðvum ICOM og gæta
hagsmuna þeirra, þ.m.t. faglegra, á þeim
vettvangi,
að starfa í samvinnu við alþjóðadeildir
ICOM og innlend jafnt sem erlend samtök sem starfa
að safnamálum.
3.
AÐILD
Félagar í Íslandsdeild
ICOM skulu vera allir þeir einstaklingar, búsettir á Íslandi,
sem veitt hefur verið inngang í ICOM með fullgilda
eða stuðningsaðild, svo og stofnanir á Íslandi
sem veitt hefur verið innganga sem slíkum, ásamt öllum
félögum ICOM sem búsettir eru í öðrum
löndum og hafa stofnað til sambands við Íslandsdeild
ICOM skv. lögum ICOM, 14. kafla, 4. gr.
Heiðursfélagar ICOM sem búsettir eru á Íslandi
skulu hafa rétt til þátttöku í starfi Íslandsdeildar
ICOM, en hafa hvorki kosningarétt né kjörgengi.
Einstaklingur eða stofnun, sem óskar eftir
inngöngu í ICOM skal fylla í sérstaka
inntökubeiðni og afhenda hana Íslandsdeildinni
til umfjöllunar.
Sérhver einstaklingur eða stofnun sem fullnægir
skilyrðum um inngöngu skv. lögum ICOM,
6. kafla, 2., 3. eða 4. gr. og stundar ekki kaup
eða sölu á listmunum eða öðrum
menningarverðmætum í hagnaðarskyni
skal eiga rétt á aðild að Íslandsdeild
ICOM.
Stjórn Íslandsdeildarinnar skal fjalla
um allar inntökubeiðnir svo skjótt sem
unnt er. Er stjórnin hefur samþykkt beiðnina
skal hún tilkynna umsækjanda ákvörðun
sína og er honum upp frá því skylt
að greiða árgjald eins og það er ákvarðað hverju
sinni af framkvæmdarstjórn ICOM fyrir þá tegund
aðildar sem við á. Jafnskjótt
og Íslandsdeild ICOM hefur móttekið greiðslu árgjalds öðlast
hinn nýi félagi þau réttindi
sem fylgja aðild að deildinni.
Aðild að ICOM og Íslandsdeildinni skal
aðeins ljúka í samræmi við lög
ICOM, 9. kafla.
4. ÁRGJALD
Félögum í Íslandsdeild
ICOM er skylt að greiða árgjald til
ICOM, en upphæð þess er ákvörðuð af
framkvæmdastjórn ICOM fyrir þá tegund
aðildar sem viðkomandi félagi nýtur.
Íslandsdeild ICOM er heimilt að leggja allt
að 10% ofan á árgjöld ICOM eins
og framkvæmdastjórn hefur ákvarðað þau,
til að standa straum af eigin kostnaði, nema
framkvæmdastjórn hafi sérstaklega
heimilað innheimtu hærri hundraðshluta.
Er Íslandsdeild ICOM hefur móttekið greiðslu árgjalds
frá nýjum félaga skal hún
veita höfuðstöðvum ICOM allar viðkomandi
upplýsingar um hann og greiða ICOM upphæð mótsvarandi árgjaldi
eins og það hefur verið ákvarðað af
framkvæmdastjórn, sbr. lög ICOM, 22.
kafla, 1. gr. (g).
Þegar Íslandsdeild ICOM hefur fengið í hendur
félagsskírteini þar sem á er þrykkt
nafn og númer hins nýja félaga skal
límmiði, sem sýnir að árgjald
hefur verið greitt, festur á skírteinið og það síðan
sent hinum nýja félaga.
Á hverju ári, er Íslandsdeild ICOM
hefur fengið í hendur þá upphæð,
sem félaga var tilkynnt að honum bæri
að greiða, skal honum afhentur límmiði
sem sýnir að árgjaldið hefur veri ð greitt. Íslandsdeildin
skal síðan senda höfuðstöðvum
ICOM þá upphæð sem framkvæmdastjórn
ICOM hefur ákvarðað, eigi síðar
en 1. apríl þess árs sem árgjaldið tekur
til.
Gjalddagi árgjalda er 1. janúar og eindagi
1. apríl. Íslandsdeild ICOM skal tilkynna
höfuðstöðvum ICOM nöfn þeirra
félaga sem ekki hafa greitt árgjald á eindaga.
Heimilt er að neita þeim um þjónustu
félagsins og þeir skulu ekki hafa rétt
til þátttöku í starfsemi deildarinnar. Þeir
skulu ekki hafa kjörgengi til stjórnar eða
taka þátt í starfi hennar, né heldur
taka þátt í neinum atkvæðagreiðslum
innan deildarinnar þar til árgjaldið hefur
verið greitt. Hafi árgjald ekki verið greitt þann
31. desember á því ári er það féll í gjalddaga,
skal aðild viðkomandi félaga að ICOM
lokið, sbr. lög ICOM, 9. kafla, 1.gr. (b).
5,
FJÁRMÁL
- Íslandsdeild
ICOM er heimilt að afla þess fjár
er hún telur nauðsynlegt til starfsemi
sinnar, enda sé farið að löglegum
og viðeigandi leiðum, þ.m.t. með þátttökugjaldi á fundum
og sölu rita og annars varnings.
- Íslandsdeild
ICOM hefur rétt til þess að halda
eftir og nota í eigin þágu hvert það fé,
sem hún fær frá félögum
sínum umfram árgjöld sbr. 4. gr.
(b) í lögum þessum.
- Íslandsdeild
ICOM er heimilt að veita viðtöku styrkjum
gjafafé, svo og tryggingum styrktaraðila
fyrir greiðslu kostnaðar við starfsemi
deildarinnar.
- Allt það fé sem Íslandsdeild
ICOM tekur á móti skal lagt inn á sérstakan
bankareikning, sem stofnaður er í nafni
deildarinnar, einnig skulu allar greiðslur sem
deildin innir af hendi fara um þennan reikning.
- Sjóðir Íslandsdeildar
ICOM eru óskyldir öllum sjóðum í eigu
ICOM sem alþjóðasamtaka og skulu
varðveittir aðskildir frá þeim.
Hinir síðarnefndu skulu varðveittir á sérstökum
bankareikningi sem stofnaður er skv. ákvæði í lögum
ICOM, 26. kafla, 6. gr.
- Íslandsdeild
ICOM er skylt að færa nákvæmt
bókhald um allar tekjur og gjöld. Reikningana
skal endurskoða árlega og leggja fyrir
aðalfund deildarinnar. Reikningsskil skulu miðuð við almanaksár.
6.
FUNDIR ÍSLANDSDEILDAR ICOM
- Íslandsdeild
ICOM skal halda fundi eftir því sem þurfa þykir.
- Árlega
skal halda aðalfund deildarinnar. Boða skal
alla félaga til aðalfundar með minnst
tveggja vikna fyrirvara, þ.m.t. félaga
skv. 14. kafla, 4. gr. í lögum ICOM.
- Félaga
sem ekki getur sótt aðalfund er heimilt
að veita öðrum félaga deildarinnar
skriflegt umboð sitt og skal umboðshafi hafa öll
réttindi umbjóðanda síns á fundinum, þ.m.t.
til atkvæðagreiðslu fyrir hans hönd.
- Aðalfundur
fer með æðsta vald í málefnum Íslandsdeildar
ICOM. Á aðalfundi skulu m.a. eftirfarandi
liðir vera á dagskrá:
- lögð fram ársskýrsla, þar
sem m.a. er fjallað um tengsl við aðrar
starfseiningar ICOM, UNESCO-nefndina á Íslandi
og önnur landssamtök sem fjalla um málefni
safna og safnmanna;
- lagðir
fram endurskoðaðir ársreikningar;
- kjör
til stjórnar eftir því sem
við á;
- endurskoðun
og samþykkt starfsáætlunar deildarinnar
fyrir næsta starfsár.
- Aðalfundur
er löglegur, sé löglega til hans
boðað. Í atkvæðagreiðslum
og kosningum ræður einfaldur meirihluti, þó að undanteknum
atkvæðagreiðslum um lagabreytingar
sbr. grein 8. (d).
- Á fundum Íslandsdeildar
ICOM skal sérhver félagi hafa eitt
atkvæði, en er einnig heimilt að fara
með umboð annarra félaga í kosningum
og atkvæðagreiðslum. Stofnun sem á aðild
að deildinni sem slík, getur skriflega
tilnefnt einstakling til að fara með eitt
atkvæði fyrir hönd stofnunarinnar.
7.
STJÓRNUN ÍSLANDSDEILDAR ICOM
- Umsjón
með störfum deildarinnar skal vera í höndum
kjörinnar stjórnar. Stjórn deildarinnar
skal skipuð formanni, ritara og gjaldkera ásamt
tveimur varafulltrúum. Jafnframt skulu kjörnir
tveir endurskoðendur Stjórnarmaður
skal kjörinn til þriggja ára, en
er óheimilt að sitja lengur en tvö þriggja ára
kjörtímabil í röð, nema
að hann sé að því loknu
kjörinn formaður og hafi ekki gegnt því starfi á næstliðnum
kjörtímabilum.
- Allir
fullgildir félagar Íslandsdeildar ICOM, þ.m.t.
tilnefndir fulltrúar stofnana sem eiga aðild
að deildinni sem slíkar, skulu vera kjörgengir
til stjórnar, þó með þeim
takmörkunum sem settar eru skv. lögum ICOM,
14. kafla, 10. gr.
- Hætti
stjórnarmaður störfum milli aðalfunda
skal stjórn tilnefna annan af varafulltrúum í hans
stað fram að næsta aðalfundi, en þá skal
kosinn nýr fulltrúi í stjórn í stað þess
er lét af störfum. Stjórnarmaður
sem kjörinn er á þann hátt
skal ekki sitja lengur en til loka kjörtímabils þess
sem lét af störfum, en slík stjórnarseta
skal ekki talin til takmarkana skv. lögum ICOM,
14. kafla, 10. gr.
- Stjórnarmaður í Íslandsdeild
ICOM skal láta af störfum:
- segi
hann af sér
- teljist
hann ekki lengur félagi í ICOM af
hvaða ástæðu sem vera skal,
- teljist
hann ekki lengur fullgildur félagi í ICOM
sbr. lög ICOM, 6. og 9. kafla.
- Stjórn
deildarinnar skal koma saman eftir þörfum, þó ekki
sjaldnar en tvisvar á ári.
- Geti
stjórnarmaður ekki sótt stjórnarfund
skal honum heimilt að tilnefna annan af varafulltrúum í sinn
stað.
8.
LAGABREYTINGAR
- Lögum þessum
má aðeins breyta á löglega
boðuðum aðalfundi Íslandsdeildar
ICOM.
- Öllum
fullgildum félögum, svo og stjórn
deildarinnar, skal heimilt að gera tillögur
til lagabreytinga. Texti tillagnanna ásamt
nauðsynlegustu skýringum skal kynntur öllum
félögum deildarinnar í síðasta
lagi tveimur vikum fyrir þann aðalfund
sem fjalla á um tillögurnar.
- Heimilt
er aðalfundi að gera minniháttar breytingar á breytingartillögum.
Fundarstjóri ákveður hvort slíkar
tillögur eru minni háttar.
- Breytingar á lögum
skulu aðeins ná fram að ganga séu þær
samþykktar af þremur fjórðu
greiddra atkvæða fundarmanna og þá aðeins
ef minnst þriðjungur af félögum
deildarinnar taka þátt í fundinum, í eigin
persónu eða með umboði.
9.
FÉLAGSSLIT
- Íslandsdeild
ICOM skal lögð niður ef framkvæmdarstjórn
ICOM afturkallar viðurkenningu sína á deildinni
skv. lögum ICOM, 14. kafla, 17. gr.
- Verði
deildin lögð niður, skulu eignir hennar,
ef einhverjar eru, renna til íslenskra landssamtaka á einhverju því sviði
safnamála, sem framkvæmdastjórn
ICOM viðurkennir. Séu engin slík
samtök starfandi eða hafni þau að veita
eignum deildarinnar viðtöku, skal málinu
vísað til framkvæmdastjórnar
ICOM, sem ráðstafar eignunum í samráði
við menntamálaráðuneyti Íslands.
Samþykkt á aðalfundi Íslandsdeildar
ICOM 11. nóv. 1991
Breytingar
samþykktar á aðalfundi 8. des. 1993.
|
|