Safnaverðlaunin
Íslensku Safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og er ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum. Þeim er jafnframt ætlað að efla faglegan metnað og vera hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Að Safnaverðlaununum standa Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnamanna (FÍSOS).
Verðlaunin eru veitt einu safni sem þykir hafa skarað fram úr og vera til eftirbreytni. Ekki er gerður greinarmunur á tegundum safna og koma því öll söfn á landinu til greina; minja- og byggðasöfn, listasöfn, náttúrugripasöfn og önnur sérsöfn.
Safnverðlaunin voru fyrst veitt árið 2000. Valnefnd skipuð fulltrúum félaganna og fulltrúa frá safninu sem síðast hlaut verðlaunin velur úr innsendum hugmyndum en óskað er eftir tillögum frá almenningi jafnt sem fagmönnum. Viðurkenningin sem felst í verðlaununum er bæði heiður og hvatning söfnunum þrem sem hljóta tilnefningu ekki síður en því safni sem hlýtur verðlaunin.
2010
Nýlistasafnið í Reykjavík hlaut Safnaverðlaunin 2010. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands afhenti þau við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þrjú söfn hlutu tilnefningu árið 2010 - Byggðasafn Skagfirðinga, Nýlistasafnið í Reykjavík og Heimilisiðnarðarsafnið á Blönduósi.
Umsögn dómnefndar um Nýlistasafnið:
Nýlistasafnið var stofnað 5. janúar 1978 og fagnaði því 32 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni af 30 ára starfsemi safnsins var gefin út bókin Nýlistasafnið 1978–2008 sem er sögulegt yfirlit um starfsemi, forsendur og hlutverk safnsins sett fram á áhugaverðan og aðgengilegan hátt. Þetta sjónræna uppflettirit er skemmtileg nýbreytni í safnastarfi þar sem tekist hefur að samþætta hönnun, tíðaranda og tilgang safnsins í eins konar safngrip sem mögulega heldur sýningum og hugsjón safnsins lifandi með frekari umræðu og úrvinnslu á þeirri starfsemi sem fram hefur farið undanfarna áratugi. Í bókinni er einnig að finna fróðlega atburðaröð eða tímalínu sem unnin var úr fundargerðum og heimildum úr skjala- og gagnasafni Nýlistasafnsins.
Efnt var til viðamikils skráningar- og rannsóknarverkefnis á safneign og gögnum er tengdust sögu safnsins sem hófst formlega í byrjun árs 2008. Árangurinn af skráningarvinnunni fól í sér víðtæka samvinnu við listamenn og fagaðila og var vinnuferlið gert sýnilegt sem hluti af starfsemi safnsins. Varðveisla og heimildir um gjörninga og gjörningatengd verk skiptir hér sköpum því sá listmiðill hefur gjarnan orðið undir í söfnunarstefnu annarra listasafna á Íslandi. Nýlistasafnið hefur öðrum söfnum fremur fóstrað grasrótina í listsköpun eins og nafn safnsins gefur til kynna og aldrei hvikað frá þeirri stefnu. Safnið hefur frá upphafi verið virkur vettvangur fyrir sýningar, listviðburði og staðið fyrir söfnun á samtímamyndlist. Þegar skoðað er sýningayfirlit Nýlistasafnsins sem telur yfir 350 blaðsíður þá er tenging safnsins við alþjóðlegt myndlistarlíf óumdeilanleg. Það að bjóða íslenskum og erlendum listamönnum að sýna saman hefur einnig verið mikilsvert framlag til íslensks listalífs og án efa virkað sem hvetjandi þáttur í starfsemi þess, fyrir íslenska myndlist og ekki síst fyrir almenning. Safnið hefur sérstöðu hvað varðar stjórnun þess og eignarhald en íslenskir myndlistamenn hafa stjórnað safninu frá upphafi og unnið þar sleitulaust að mestu í sjálfboðavinnu. Á þessum þremur áratugum hefur rekstur Nýlistasafnsins orðið bæði formlegri og faglegri með því að hefðbundnum skyldum safna hefur í auknum mæli verið sinnt án þess að kraftur og sveigjanleiki safnsins sem vettvangur gagnrýninnar listumræðu hverfi.
Þann 27. febrúar 2010 opnaði Nýlistasafnið starfsemi sína að Skúlagötu 28 sem er fimmta staðsetning safnsins frá upphafi og telur safneign nú um 2000 verk.
Dómnefnd telur að Nýlistasafnið hafi, með þeirri vinnu sem safnið fór í, sýnt fram á mikilvægi sýnileika safneignar fyrir starfsemi safna og menningarstarfs almennt. Nýlistasafnið stóð frammi fyrir fjölmörgum áskorunum bæði hvað varðar húsnæðismál og á sviði varðveislu og skráningar safneignarinnar, þar sem verk í eigu þess voru oft á tíðum gerð úr forgengilegum efnum eða listhugsun verksins sú að það ætti sér ekki lengri lífdaga en sem nam sýningartímabili eða framkvæmd gjörnings. Þrátt fyrir áskoranir og erfiðleika hefur starfsemi safnsins farið fram með góðu fordæmi.
2008
Byggðasafn Vestfjarða hlaut Íslensku safnaverðlaunin.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands afhenti
þau við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum. Þau eru veitt annað hvert ár
því safni sem þykir hafa skarað fram úr
í sínu safnastarfi. Safnaverðlaunin voru fyrst
afhent árið 2000. Þrjú söfn voru
tilnefnd í ár. Það voru Byggðasafn
Vestfjarða, Minjasafnið á Akureyri og Safnasafnið
á Svalbarðsströnd, sem reyndar afþakkaði
tilnefninguna nú fyrir skemmstu.
Það
var Jón Sigurpálsson, forstöðumaður
Byggðasafns Vestfjarða, sem veitti verðlaununum viðtöku
fyrir hönd Byggðasafnsins. Í tilkynningu frá
skrifstofu forseta kemur fram að Byggðasafn Vestfjarða
á Ísafirði sé einstakt safn í
sinni röð. Sýningarsvæði þess
sé í Neðstakaupstað þar sem standi
fjögur hús frá 18. öld, Tjöruhúsið,
Krambúð og Faktorshúsið og Turnhúsið,
sem saman myndi elstu heild húsa á Íslandi.
Þá segir að Byggðasafn Vestfjarða hafi
staðið að varðveislu þessara merkilegu húsa
með þeim hætti að til fyrirmyndar er og í
Neðstakaupstað hefur tekist að skapa andrúmsloft
sem vitnar um atvinnuhætti fyrri tíma.
Byggðasafn
Vestfjarða leggur áherslu á að safna bátum
og bátavélum og hefur farið þá
leið í varðveislu báta að halda þeim
sjófærum og stuðla þannig að því
að viðhalda verkþekkingu við bátasmíðar.
Safnið hefur umsjón með elsta slipp landsins þar
sem unnt er að standa að viðhaldi báta.
2006
Safnið sem í ár hlýtur Íslensku
safnaverðlaunin hefur vakið eftirtekt fyrir vandaða
og fjölbreytta miðlun og sýningargerð. Tekist
hefur að efna til samstarfs við ólík félög
og hópa við gerð þeirra. Á árinu
2006 hefur safnið opnað og kynnt þrjár ólíkar
sýningar að efni og framsetningu. Ein sýningin
er skammtímasýning en hinar tvær munu standa
til lengri tíma. Þá hefur safnið nú
í sumar farið óhefðbundna leið í
sýningargerð og samstarfi við sex listamenn.
Það
var einróma niðurstaða dómnefndar að
veita Minjasafni Reykjavíkur, Árbæjarsafni,
Íslensku safnaverðlaunin 2006.
Það
er álit dómnefndar að með fjölbreyttum
sýningum hafi Minjasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafn
lagt fram mikilvægan skerf til eflingar faglegs starfs í
sýningargerð. Árangurinn er hvatning til annarra
safna á Íslandi að kynna margvíslegan
og fjölbreyttan menningararf þjóðarinnar
á framsækinn og áhugaverðan hátt.
2003
Dómnefnd íslensku safnaverðlaunanna samþykkti
einróma að veita Myndadeild Þjóðminjasafns
Íslands Íslensku safnaverðlaunin árið
2003 fyrir öflugt og metnaðarfullt rannsókna-
og útgáfustarf.
Myndadeild
Þjóðminjasafns Íslands hefur borið
þá gæfu að við hana hafa starfað
færustu sérfræðingar í sögu
íslenskrar ljósmyndunar, auk þess sem þjóðminjaverðir
hafa frá upphafi dyggilega stutt framgang og vöxt
myndasöfnunar Þjóðminjasafns Íslands.
Myndadeild
Þjóðminjasafns Íslands varðveitir
um 1,6 milljónir ljósmynda sem borist hafa jafnt
og þétt frá því safnið var
sett á fót fyrir 140 árum. Jafnframt varðveitir
myndadeildin fjölþætt myndefni eins og teikningar,
vatnslitamyndir, prentmyndir, grafíkblöð og málverk.
Jafnhliða varðveislu og söfnun menningararfsins stunda
sérfræðingar safnsins ljósmyndarannsóknir
og rannsóknir á íslenskri ljósmyndasögu.
Á vegum deildarinnar og safnsins hafa verið haldnar
vandaðar ljósmyndasýningar og gefnar út
veglegar ljósmyndabækur. Sérstök myndastofa
er starfrækt við deildina sem veitir aðstoð
þeim er þörf hafa fyrir myndefni hvort heldur
er til einkanota eða til útgáfu.
Að
mati dómnefndar ber þó hæst hið
veglega rit Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945
sem gefið var út haustið 2001 af Þjóðminjasafni
Íslands og JPV-útgáfu. Höfundur bókarinnar
er Inga Lára Baldvinsdóttir sem gegnt hefur stöðu
deildarstjóra Myndadeildar Þjóðminjasafns
Íslands frá árinu 1991. Ritið byggir
að grunni til á lokaritgerð höfundar í
sagnfræði við Háskóla Íslands
um ljósmyndun á Íslandi 1846-1926. Um er
að ræða grundvallarrit um sögu ljósmyndunar
á Íslandi sem er grunnur að frekari rannsóknum
í sögu ljósmyndafræða. Í ritinu
er inngangur að sögu ljósmyndunar á tímabilinu
1845-1945 og auk þess ítarlegt ljósmyndaratal.
Ritið er aðgengilegt jafnt almenningi sem fræðimönnum
og í raun ómissandi fræðirit og upplýsingabrunnur
um ljósmyndun á Íslandi á þessu
tímabili.
2002
Dómnefnd íslensku safnaverðlaunanna samþykkti
að veita Byggðasafni Árnesinga íslensku
safnaverðlaunin árið 2002, fyrir byggingu á
þjónustuhúsnæði safnsins sem var
fullfrágengið í apríl sl. Ákvörðun
eigenda safnsins um að reisa þjónustuhúsið
með þeim hætt sem gert var er eftirbreytnivert
þar sem sú framkvæmd lýsir því
að lögð er áhersla á faglegt innra
starf og framsýni í safnstarfinu.
Segja
má að Byggðasafn Árnesinga hafi frá
upphafi glímt við aðstöðuleysi svo sem
fleiri söfn í landinu gera. Árið 1995 hófst
uppbyggingarskeið hjá safninu þegar opnaðar
voru nýjar sýningar í Húsinu og Assistentahúsinu
á Eyrarbakka. Þá höfðu bæði
húsin hlotið gagngera viðgerð en eftir stóð
að rými vantaði fyrir innra starf safnsins, þ.e.
söfnun, varðveislu, skráningu og sýningagerð.
Innra starf safnanna er grundvöllur þess sem blasir
við hinum almenna safngesti. Skráning og yfirsýn
starfsmanna yfir safnkostinn, traustur og öruggur aðbúnaður
hans eru mikilvægustu þættir þess að
safnstarfið þrífist til framtíðar.
2001
Dómefnd
íslensku safnaverðlaunana samþykkti einróma
að veita safnfræðsludeild Listasafns Reykjavíkur
íslensku safnaverðlaunin árið 2001, en safnfræðsludeildin
hefur sinnt listfræðslu til almennings af fagmennsku
og verið leiðandi hvað varðar uppeldishlutverk
innan safnastarfs á Íslandi.
Safnfræðsla
hefur verið starfrækt við Listasafn Reykjavíkur
frá árinu 1991. Í meginatriðum er um
tvíþætta starfsemi að ræða annars
vegar þjónusta við hinn almenna safnagest og
hins vegar miðlun til skólanema.
Þjónusta
við hinn almenna safngest felst í leiðsögn
um sýningar safnsins sem hefur það að markmiði
að gera heimsóknina áhugaverðari og ánægjulegri.
Leiðsögnin er í höndum myndlistarmanna og
safnkennara sem leiða gesti um sýningar safnsins og
svara spurningum. Safnafræðsla gefur einnig farið
fram í formi leikja og þrauta, þar sem foreldrar
og börn taka þátt saman. Það er til
fyrirmyndar að Listasafn Reykjavíkur býður
upp á leiðsögn fyrir heyrnarskerta, en mánaðarlega
fylgir táknmálstúlkur leiðsögumanni
í almenni leiðsögn. Sjónskertir geta einnig
bókað tíma og kynnst höggmyndum safnsins
með snertingu. Heimur myndlistarinar er fyrir marga óaðgengilegur
og jafnvel framandi, en með öflugri safnfræðslu
fyrir almenning stuðlar safnið að því
að gera myndlist aðgengilega og áhugaverða.
2000
Dómnefnd
samþykkti einróma að veita Síldarminjasafninu
á Siglufirði Íslensku safnaverðlaunin árið
2000. Forseti Íslands afhenti verðlaunin að Bessastöðum
þann 22. september 2000, í móttöku sem
var hluti af dagskrá hins árlega Farskóla
safnmanna að viðstöddum u.þ.b. 80 safnmönnum.
Verðlaunagripurinn er skjöldur hannaður af Sigríði
Bragadóttur grafískum hönnuði.
Síldarminjasafnið
hefur verið starfrækt í Róaldsbrakka frá
1994, og óhætt mun að fyllyrða að FÁUM,
Félag áhugamanna um minjasafn sem stofnað var
í september 1989, hafi undir forystu Örlygs Kristfinnssonar
haft forgöngu um að Síldarminjasafnið þróaðist
í þá mynd sem við þekkjum í
dag. Síldarminjasafnið er sérhæft safn
með markvissa söfnunarstefnu, þar sem söfnunarsvið
þess er síldarútvegur og síldarvinnsla
á Íslandi 1868-1968, eða þeir atburðir
sem kallaðir hafa verið síldarævintýrið
mikla.
Á
sýningu safnsins er kynnt sérhæft atvinnulíf,
þ.e.síldveiðar, söltun, bræðsla
og frystiðnaður og fléttað saman við daglegt
líf vinnandi fólks á staðnum. Þetta
er gert á lifandi og áhugaverðan hátt
þar sem teflt er saman þekkingu og hugviti forstöðumanns
fremur en dýrum aðkeyptum lausnum.
|